Kennsla hefst aftur fimmtud. 15. apríl.
Svo við höldum þá áfram þar sem frá var horfið.
Bið foreldra er ekki æskileg og allir sem mæta með eða sækja börnin hafi grímu.
Ítrekum einnig að allir nemendur reyni að mæta sem mest tilbúnir og eyði eins stuttum tíma og mögulegt er í búningsklefum.
Við höldum áfram að vanda okkur vel, sótthreinsum allt og sprittum.
Við munum lengja námskeiðin um þessa tíma sem féllu niður, frekari uppl. koma um það betur síðar en við stefnum á að vera með kennslu á almennum frídögum eins og á sumardeginum fyrsta, uppstigningardegi og 1. maí.
Við erum búin að færa sýningardagana okkar yfir á 17. og 18. maí.
Frekari uppl. koma síðar en við eigum líka eftir að fá frekari uppl. frá leikhúsinu, þá hvernig við munum hafa það plan og halda sýningar miðað við þær fjöldatakmarkanir sem gilda núna.
Hlökkum til að sjá alla aftur 💖