Jazzballett og söngleikjadans
Kenndir eru hinir ýmsu dansstílar svo sem jazz, söngleikjadansar, hip-hop, o.fl. 1x í viku í 4 vikur.
Þessir tímar eru aðeins kenndir í húsnæði skólans í Skipholti 50c
Mikil áhersla er lögð að nemendur þjálfi tækni og grunnspor, geri góðar æfingar sem liðka og styrkja líkamann ásamt teygjum.
Sjá allar upplýsingar um tíma og daga hér til hliðar í öllum aldursflokkum.
Hvað viljum við fá út úr náminu?
Börnin læra undirbúningsæfingar og grunn í jazzballett sem hæfa aldri þeirra og þroska. Æfingar og spor eru útfærð í gegnum dansa og skemmtilega tónlist. Erfiðleikastig hækkar síðan smátt og smátt með aldrinum.
Börnin gera einnig æfingar sem liðka og styrkja líkamann. Þau læra að telja í takt við tónlist, vera í röð og fylgja settum reglum.
Foreldrasýning í sal í lok annar á haustönn.
Nemendasýning í Borgarleikhúsinu á vorönn. Skráning er bindandi.